Starfshópur um úrbætur á brunavörnum í húsnæði þar sem fólk hefur búsetu
Innviðaráðherra hefur skipað tvo starfshópa um úrbætur á brunavörnum í húsnæði þar sem fólk hefur búsetu. Markmið þeirra er að fylgja eftir ákveðnum tillögum í skýrslu samráðsvettvangs um brunavarnir í húsnæði þar sem fólk hefur búsetu í kjölfar brunans við Bræðraborgarstíg 1. Helstu verkefni hópsins er að útfæra tillögurnar og annast eftirfylgni með þeim.
Hópur 1
Tillögurnar eru svohljóðandi:
3. Tryggt verði að íbúðarhúsnæði sé ekki tekið í notkun án þess að fram hafi farið öryggisúttekt, fyrir eða samhliða lokaúttekt.
7. Samhliða innleiðingu á flokkun mannvirkja verði ráðist í fræðsluátak um tilkynningaskyldar og byggingarleyfisskyldar framkvæmdir með áherslu á brunavarnir.
8. Skilgreindir verði hvatar til að ná fram réttri skráningu á húsnæði sem hefur verið breytt án leyfis eða tilkynningar, með umsókn um byggingarleyfi eða tilkynntri framkvæmd.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
Aðalmenn:
Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, án tilnefningar, HMS, formaður (tók við af Herdísi Hallmarsdóttur sem upphaflega var skipuð í starfshópinn),
Björn Karlsson, án tilnefningar, innviðaráðuneytið,
Bjarni Kjartansson, tilnefndur af Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu,
Tryggvi Þórhallsson, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Jón Ben Einarsson, tiln. af Félagi byggingarfulltrúa,
Óskar Torfi Þorvaldsson, tiln. af Reykjavíkurborg.
Varamenn:
Regína Valdimarsdóttir, án tilnefningar, HMS,
Sigrún Dögg Kvaran, án tiln., innviðaráðuneytið,
Einar Bergmann Sveinsson, tilnefndur af Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu,
Kristín Ólafsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Sveinn Björnsson, tiln. af Félagi byggingarfulltrúa,
Vífill Björnsson, tiln. af Reykjavíkurborg.
Hópur 2
Tillögurnar eru svohljóðandi:
6. Endurskoðaðar verða heimildir til fjöldaskráningar lögheimilis/aðseturs í íbúðarhúsnæði.
9. Sérstakt átaksverkefni vegna eldri timburhúsa með áherslu á fræðslu og brunavarnir skjalfestar.
11. Metið verði hvort og í hvaða mæli heimila skuli með lögum tímabundna aðsetursskráningu og búsetu í atvinnuhúsnæði sem uppfyllir kröfur um öryggi.
12. Endurskoðaðar verði heimildir slökkviliðs og byggingarfulltrúa til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á lögum og til aðgangs að íbúðarhúsnæði til eftirlits.
Starfshópurinn er þannig skipaður:
Aðalmenn:
Regína Valdimarsdóttir, án tilnefningar, HMS, formaður,
Björn Karlsson án tilnefningar, innviðaráðuneytið,
Aleksandra Leonardsdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands,
Jón Viðar Matthíasson, tilnefndur af Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu,
Kristín Ólafsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Birta Austmann Bjarnadóttir, tiln. af Þjóðskrá Íslands.
Varamenn:
Aldís Hilmarsdóttir, án tilnefningar, HMS,
Sigrún Dögg Kvaran án tiln., innviðaráðuneytið,
Saga Kjartansdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands,
Einar Bergmann Sveinsson, tilnefndur af Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu,
Guðjón Bragason, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Karen Edda Benediktsdóttir, tiln. af Þjóðskrá Íslands.
Skipað er til og með 30. júní 2022.