Hoppa yfir valmynd
14. maí 2024

Kosning utan kjörfundar í sendiráði Íslands í London

Kosning utan kjörfundar í sendiráði Íslands í London - myndHaraldur Jónasson / Hari

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga þann 1. júní 2024 fer fram 2. maí til 31. maí. Í umdæmislöndum sendiráðs Íslands í London fer utankjörfundaratkvæðageiðsla fram í sendiráði Íslands í London og hjá kjörræðismönnum Íslands í Bretlandi, Írlandi og Möltu.

Sendiráðið vekur sérstaka athygli á eftirfarandi:

  • Kjósendur bera ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Samkvæmt upplýsingum frá Royal Mail taka póstsendingar til Íslands 3 til 5 daga og telst sendingardagur þá ekki með. Sendiráðið hvetur kjósendur til að gera ráð fyrir hugsanlegum töfum á póstsendingum og senda atkvæði sín tímanlega.
  • Kjósendur verða beðnir að gera grein fyrir sér, t.d. með framvísun íslensks skilríkis með kennitölu eða með öðrum hætti sem kjörstjóri metur fullnægjandi.
  • Kjósendur geta kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá með því að fletta upp kennitölu sinni á vef Þjóðskrár.

Hægt verður að kjósa í sendiráðinu á venjulegum opnunartíma virka daga í maí frá klukkan 9:00 - 16:30 mánudaga til fimmtudaga, og 9:00-16:00 föstudaga. Auk þess verður hægt að mæta í sendiráðið laugardaginn 11. maí frá kl. 11:00 - 14:00 og miðvikudaginn 15. maí frá kl. 9:00 - 19:30.

Þau sem vilja kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands eru beðin um að hafa samband við sinn nálægasta kjörræðismann, og mæla sér mót með góðum fyrirvara.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum